• 99. Fyrrilífs upplifun Dagný
    May 25 2026

    Í þessum þætti segir Dagný okkur frá sinni mögnuðu lífsreynslu eftir fyrrilífs dáleiðslu og heilun hjá hinni mögnuðu Vigdísi. Það er ótrúlegt að heyra það sem hún upplifði í þessum tíma og hvað það hjálpaði henni mikið!

    Selma horfði á og ekki er það sýðri upplifun að vera vitni af svona fyrrilífs dáleiðslu og heilun. Það er magnað hvað sálin man og getur tekið með sér allskonar úr fyrrilífum inn í þetta líf sem við lifum núna og oft erum við að burðast með hluti sem við getum losnað við.

    Hlustaðu á þáttinn í fullri lengd og komdu í áskrift!

    www.patreon.com/hidyfirnatturulega

    Show More Show Less
    12 mins
  • 98. Ufo sightings í Hafnarfirði
    May 20 2026

    Selma var í göngutúr í Hafnarfirði um helgina og varð hún og sunor hennar vitni að mjög undarlegum fljúgandi furðurhlut. Á himninum birtist hlutur sem hafði fyrst kassalaga form, en á nokkrum sekúntum áður en hún gat byrjað að taka upp video þá breytti þetta um form og varð hringur. Hreyfingar voru óvenjulegar og erfitt var að bera þær saman við hefðbundnar flugvélar, þyrlur eða dróna. Á köflum leit út fyrir að hluturinn afmyndaðist eða flökti, eins og hann væri ekki með fasta lögun.

    Í fyrstu var hún alveg viss um að þetta væri bara gasblaðra eða ruslapoki, en heilinn á okkur á það til að reyna að finna rökrétta útskýringu og efast um það sem maður er að sjá.

    Hvað sem þetta var á himninum þá var þetta fljúgandi furðuhlutur, mögulega ufo eða bara eitthvað sem á sér eðlilega skýringu eins og ruslapoki eða blaðra. En ef þið skoðið videoið og myndirnar þá hafa nákvæmlega svona furðuhlutir verið að birtast út um allan heim! Hvað haldið þið að þetta geti verið?

    Viltu enn meira yfirnáttúrulegt í líf þitt? komdu í áskrift!

    www.patreon.com/hidyfirnatturulega

    Mentioned in this episode:

    d+ypra ofan í yfiornáttúrulega áskrift

    Galdrabox

    Við erum með þrjá galdra til sölu á www.mistur.is Ástargaldur Hreinsunar og verndargaldur Manifest galdur

    Komdu í áskrift

    Show More Show Less
    57 mins
  • 97. Andleg vegferð er allskonar
    May 18 2026

    Andleg vegferð er eitthvað sem flestir fara í gegnum á einn eða annan hátt, jafnvel þó fólk noti mismunandi orð yfir hana. Fyrir suma tengist hún trú, fyrir aðra sjálfsþekkingu, tilfinningum, lífsreynslu eða tengingu við hinn andlega heim. Andleg vegferð snýst í grunnin um að læra að skilja sjálfan sig betur og hjálpa við að finna innri frið.

    Oft halda margir að andlegt fólk þurfi að vera í hörklæðnaði, sitja í hugleiðslu allan daginn eða vera eins og jóga gúrú eða munkur. En andleiki snýst ekki um útlit eða ákveðinn lífsstíl. Maður þarf ekki að fylgja einhverri sérstakri ímynd til að teljast andlegur. Andlegur einstaklingur getur alveg verið venjuleg manneskja sem vinnur venjulega vinnu, hlustar á tónlist, hittir vini sína og lifir sínu daglega lífi.

    Vertu hluti af yfirnáttúrulega samfélaginu okkar og komdu í áskrift inn á:

    www.patreon.com/hidyfirnatturulega

    Show More Show Less
    11 mins
  • 96. Vadíkanið
    May 13 2026

    Vatíkanið hefur lengi verið eitt dularfyllsta og áhrifamesta ríki heims, bæði vegna trúarlegs valds og sögulegrar arfleifðar. Sem miðstöð Rómversk-kaþólska kirkjan gegnir það lykilhlutverki í lífi milljóna manna, en jafnframt hefur það verið uppspretta fjölmargra samsæriskenninga og sögusagna í gegnum tíðina.

    Ein þekktasta kenningin snýr að leyniskjölum sem eiga að vera geymd í Vatíkanleyndarsafnið. Þar er talið að finna skjöl sem kirkjan vill ekki að almenningur sjái, til dæmis um raunverulegan uppruna kristni, mögulegar tengingar við utanjarðarlíf eða jafnvel sönnunargögn sem gætu kollvarpað hefðbundnum trúarkenningum. Þó safnið sé raunverulega til og innihaldi mikilvæg söguleg gögn, er aðgangur mjög takmarkaður, sem hefur ýtt undir vangaveltur og grunsemdir.

    Sumir halda því fram að Vatíkanið búi yfir leyndum þekkingum eða gripum sem tengjast yfirnáttúrulegum fyrirbærum. Þar má nefna sögur um „tímavél“ sem kallast Chronovisor, tæki sem á að geta sýnt atburði úr fortíðinni.

    Vertu hluti af yfirnáttúrulega samfélaginu okkar og komdu í áskrift

    www.patreon.com/hidyfirnatturulega

    Mentioned in this episode:

    Galdrabox

    Við erum með þrjá galdra til sölu á www.mistur.is Ástargaldur Hreinsunar og verndargaldur Manifest galdur

    d+ypra ofan í yfiornáttúrulega áskrift

    Galdrabox

    Við erum með þrjá galdra til sölu á www.mistur.is Ástargaldur Hreinsunar og verndargaldur Manifest galdur

    Komdu í áskrift

    Show More Show Less
    1 hr and 2 mins
  • 95. Innsæið
    May 11 2026

    Innsæi er oft eitthvað sem við upplifum sem svona „innri tilfinningu“ eins og lítil rödd eða gut feeling sem segir okkur hvað sé rétt eða rangt, jafnvel áður en við höfum hugsað málið almennilega í gegn. Sumir líta á innsæi sem eins konar tengingu við eitthvað meira en bara okkur sjálf eins og við séum að „túna okkur inn“ á stærri orku eða vitund. Þá getur innsæið birst sem sterk tilfinning, hugboð eða jafnvel tilfinning fyrir því að vita eitthvað án þess að geta útskýrt af hverju.

    Fólk sem vill styrkja innsæið sitt reynir oft að hægja á sér, vera meira í núinu og hlusta betur inn á við, til dæmis með kyrrð eða hugleiðslu. Þá verður auðveldara að greina á milli þess hvað er bara hávaði og hvað er þessi rólega, innri tilfinning.

    Vertu hluti af yfirnáttúrulega samfélaginu okkar og komdu í áskrift!

    www.patreon.com/hidyfirnatturulega

    Show More Show Less
    8 mins
  • 94. Arthur Findlay collage - okkar reynsla
    May 6 2026

    Við erum komnar heim frá Arthur Findlay og erum ekekrt smá ánægðar með þessa geggjuðu ferð! Við lærðum svo mikið og höfum tekið rosalegan vaxtarkipp í andlega heiminum. Þetta var ótrúlega skemmtilegt en á sama tíma mjög krefjandi og lærdómsríkt.

    Við förum aðeins yfir þetta í þessum þætti, hvað við lærðum og hvernig okkur fannst skólinn og námið. Við vorum að læra trans heilun í 7 daga í geggjuðu umhverfi með yndislegu fólki. Við mælum með að kíkja á þennan skóla!!! Við eigum pott þétt eftir að fara aftur mjög fljótlega enda verður fólk háð því að fara þangað, við vorum með þeim örfáu sem voru að fara í fyrsta skiptið.

    p.s. Þetta er alls ekki dýrt, 7 dagar í gistingu, námið og fullt fæði á um 140þús á mann (fyrir utan flug) https://www.arthurfindlaycollege.org/

    Komdu og vertu hluti af yfirnáttúrulega samfélaginu okkar

    www.patreon.com/hidyfirnatturulega

    Mentioned in this episode:

    Galdrabox

    Við erum með þrjá galdra til sölu á www.mistur.is Ástargaldur Hreinsunar og verndargaldur Manifest galdur

    Komdu í áskrift

    d+ypra ofan í yfiornáttúrulega áskrift

    Galdrabox

    Við erum með þrjá galdra til sölu á www.mistur.is Ástargaldur Hreinsunar og verndargaldur Manifest galdur

    Show More Show Less
    1 hr and 31 mins
  • 93. Samsæriskenningar um Tunglið
    May 4 2026

    Samsæriskenningar um tunglið eru ansi margar. Sumir halda að tunglið sé ekki náttúrulegt heldur gervihnöttur eða jafnvel geimstöð sem fylgist með jörðinni og jafnvel stýri henni að hluta til. Aðrar kenningar eins og það að tunglið sé mögulega holt að innan eða innihaldi mannvirki sem hafi áhrif á jörðina og mannkynið og að leyndarmál séu falin á tunglinu eins og byggingar eða geimverur.

    Ein frægasta samsæriskenningin um Tunglið er að lendingin í Apollo 11 Moon Landing hafi verið sviðsett og að tunglferðir manna hafi aldrei átt sér stað og þessar ferðir hafa allar verið sviðsettar. Talsmenn þessarar kenningar benda á meintar „ósamræmi“ í myndum og myndböndum.

    Okkur finnst mjög skemmtilegt að velta þessum kenningum fyrir okkur og leifa ýmyndunaraflinu að taka okkur; "út fyrir endamörk alheimsins"!

    Vertu hluti af yfirnáttúrulega samfélaginu okkar og komdu í áskrift inn á:

    www.patreon.com/hidyfirnatturulega

    Show More Show Less
    10 mins
  • 92. Geimfréttir með Gunnari Dan
    Apr 29 2026

    Við fengum að vita það allra nýjasta og heitasta slúðrið úr geimfréttum með Gunnari Dan. Það er svo mikið að gerast í þessum málaflokk að það er eiginlega bara vandræðanlegt!

    En við ræddum m.a. um dularfullu morðin og mannshvörfin á vísindamönnunum sem flestir hafa tekið eftir í fjölmiðlum síðustu vikur og mánuði. Við snertum aðeins á samsæriskenningum um Epstein skjölin og Covid sem komið er á yfirborðið og margt margt fleira.

    Það er alltaf gaman að hitta Gunnar og fræðast um geimfréttir!

    Vertu hluti af yfirnáttúrulega samfélaginu okkar og komdu í áskrift inn á:

    www.patreon.com/hidyfirnatturulega

    Mentioned in this episode:

    d+ypra ofan í yfiornáttúrulega áskrift

    Galdrabox

    Við erum með þrjá galdra til sölu á www.mistur.is Ástargaldur Hreinsunar og verndargaldur Manifest galdur

    Komdu í áskrift

    Galdrabox

    Við erum með þrjá galdra til sölu á www.mistur.is Ástargaldur Hreinsunar og verndargaldur Manifest galdur

    Show More Show Less
    1 hr and 25 mins