Hið yfirnáttúrulega cover art

Hið yfirnáttúrulega

Hið yfirnáttúrulega

By: Ghost Network®
Listen for free

This Season's Biggest Deal | £0.99/mo for 3 months + £10 Audible bonus

£5.99/mo after 3 months - terms apply. Cancel monthly
Summary
Veröldin er full af leyndardómum – og við ætlum að kafa djúpt ofan í hið yfirnáttúrulega. Hið yfirnáttúrulega er hlaðvarp þar sem við ræðum um dulræna hluti á léttu nótunum, með opnum hug en jafnframt gagnrýnum augum. Í þáttunum skoðum við það sem á sér ekki jarðneskar skýringar – dulræn fyrirbæri eins og næmni og drauga yfir í hinar ýmsu samsæriskenningar og undarlega krafta sem mannshugurinn skilur ekki til fulls. Þáttastjórnendur eru vinkonurnar Dagný og Selma sem hafa ávallt haft mikinn áhuga á dulrænum málefnum.Ghost Network® Politics & Government
Episodes
  • 128. Eru speglar portal? Getur mögulega verið eitthvað yfirnáttúrulegt við spegla?
    Nov 2 2026

    Hvað ef speglar eru ekki bara gler og silfur, heldur hlið yfir í annan heim!

    Hafið þið einhverntíman pælt í því hvaðan speglarnir koma? Afhverju voru þeir fundnir upp og hverjir komu með speglana til okkar?

    Allt frá gamalli tíð hefur fólk haft mikla dulspeki í kringum spegla m.a. nornir og seiðfólk notuðu þá gjarnan sem spádómstól til að kalla fram sýnir úr öðrum víddum, á meðan gamlar þjóðsögur segja að þeir geti fangað sjálfa mannssálina. Sumir eru hreinlega hræddir við spegla og segja að þeir geti opnað portal ef þú stillir þeim upp á vissan hátt. Þessi ótti situr enn djúpt í mörgum í dag.

    Þið þekkið ábyggilega fólk sem neitar að hafa spegla inni í svefnherbergi, eða fólk sem hreinlega breiðir yfir alla spegla á heimilinu á nóttunni svo neistinn úr augunum eða dularfullar verur handan við glerið fari ekki að fylgjast með þeim í myrkrinu. Svo er það gamla hefðin að hylja spegla þegar einhver deyr, svo sálin festist ekki í glerinu á leið sinni yfir um. En hvað gerist ef spegillinn breytist í opið portal? Hvaða verur gætu beðið hinum megin og geta þær raunverulega komist yfir í okkar raunveruleika? Hvað haldið þið?

    Búið ykkur undir spennandi en léttan þátt og fáið yfirnáttúrulega gæsahúð með okkur!

    Hlustaðu á allan þáttinn inn á www.patreon.com/hidyfirnatturulega og komdu í áskrift!

    Í áskrift færðu yfirnáttúrulega þætti í hverri viku!

    Show More Show Less
    37 mins
  • 127. Andlegt trúnó. Chakra dans og margt fleirra
    Oct 26 2026

    Í þætti dagsins ræðum við um ferðalag okkar í gegnum orkustöðvarnar 7.

    Marta Eiríks bauð okkur í 4 tíma orkustöðva/Chakra dans á dögunum. Við mættum upp í Hugarhlýju sem er æðisleg aðstaða sem Svava Bjarnadóttir rekur og fengum þessa frábæru dans upplifun.

    Við dönsuðum í gegnum orkustöðvarnar 7 og fengum allskyns upplifanir með hverri og einni orkustöð.

    Í þættinum förum við einnig yfir hvað við höfum upplifað eftir þessa mögnuðu reynslu og segjum frá aðsendri sögu sem okkur fannst alveg hreint mögnuð!

    Við elskum að heyra frá ykkur elsku nornafjölskyldunni okkar <3

    Hægt er að hlusta á þáttinn í fullri lengd á www.patreon.com/hidyfirnatturulega

    Show More Show Less
    10 mins
  • 126. Draugagangur og næmnin er að aukast.
    Oct 19 2026

    Hvað ætli sé í gangi hjá Selmu núna? Það hafa verið skítnir hlutir að gerast hjá henni sem er ekki hægt að útskýra. Ætli hún sé að opnast?

    Þegar næmnin eykst og fólk fer að heyra hluti sem eiga sér ekki sýnilegar útskýringar og breytist skynjunin gjarnan í svokallaða miðilsheyrn, sem getur birst með tvennum hætti. Annars vegar er um að ræða ytri heyrn, þar sem hljóðin virðast koma beint úr líkamlega umhverfinu, eins og fótatak á hæðinni fyrir ofan, bank í veggi, hvísl í tómu herbergi eða hljóð líkt og hlutir séu færðir til. Hins vegar getur hún birst sem innri heyrn, þar sem raddirnar hljóma inni í höfðinu en koma manni samt algjörlega á óvart. Þetta birtist oft sem skýr orð, eigið nafn kallað í hálfsvefni, eða heilu setningarnar sem koma eins og utanaðkomandi hugsanir með öðrum raddblæ en manns eigin innri rödd. Þessar sveiflur eru taldar eðlilegur hluti af því að vera næmur.

    Hægt er að þjálfa þessa skynjun og er hluti af þjálfuninni er að byggja upp traust á eigin skynjun. Sniðugt er að halda dagbók og skrifa niður allt sem þú heyrir eða skynjar, jafnvel þótt það sem þú heyrir eða skynjar virðist ekki meika sense. Með tímanum fer fólk að sjá mynstur, og þegar upplýsingar sem heyrðust reynast síðar eiga við rök að styðjast, styrkist hæfileikinn.

    Komdu í áskrift og vertu hluti af yfirnáttúrulega samfélaginu okkar:

    www.patreon.com/hidyfirnatturulega

    Show More Show Less
    10 mins
adbl_web_anon_alc_button_suppression_t1
No reviews yet