Villisca Axe Murder House cover art

Villisca Axe Murder House

Villisca Axe Murder House

Listen for free

View show details

This Season's Biggest Deal | £0.99/mo for 3 months + £10 Audible bonus

£5.99/mo after 3 months - terms apply. Cancel monthly
Summary
Í dag ætlum við að taka ykkur til ársins 2020. Í júní það ár gáfum við út fyrsta þáttinn okkar undir nafninu Draugasögur Podcast. Sá þáttur fjallaði um eitt frægasta og óhugnanlegasta morðmál í bandarískri sögu – Villisca Axe Murder House. 🪓🏠Þetta var bókstaflega byrjunin á öllu hjá okkur. Fyrsti þátturinn. Fyrsta sagan. Fyrsta skiptið sem við settum Draugasögur Podcast út í heiminn!Og síðan þá hafa liðið mörg ár, ótrúlega margir þættir og endalausar sögur sem við höfum fengið að segja ykkur. 🎙️🖤En Villisca málið hefur alltaf verið sérstakt. Þetta er eitt af þessum málum sem er svo rosalegt, svo furðulegt og fullt af spurningum að okkur hefur lengi langað að taka það fyrir aftur og gera það almennilega.Þess vegna ákváðum við að fara alla leið og endurgera Villisca þáttinn frá grunni. Í dag fáið þið tvöfaldan þátt þar sem við förum yfir allt sem þið þurfið að vita um þetta hræðilega mál: hvað gerðist þessa nótt, hverjir voru í húsinu, rannsóknina, kenningarnar og allar furðulegu vendingarnar sem hafa fylgt þessu máli í meira en heila öld. 🕯️🪓En við ætlum líka að fara í smá flashback í gamla Draugasögur Podcast stílinn. Þegar við vorum að byrja þá vorum við oft að kafa ofan í paranormal rannsóknir og hlusta á upptökur sem fólk hafði náð á svona stöðum. Í þessum þætti ætlum við því líka að skoða EVP upptökur sem hafa verið teknar inni í Villisca húsinu. 👻🎙️Þetta eru upptökur sem paranormal rannsakendur hafa náð þarna inni í gegnum árin og sumar þeirra eru taldar vera með skýrustu EVP skilaboðum sem hafa náðst á svona stað. Í þessum þætti fáið þið því að heyra upptökurnar sjálf, við ætlum að spila þær, hlusta á þær með ykkur og ræða hvað gæti mögulega verið að gerast í þeim. 🔊👀Fyrir okkur er þetta líka svolítið stór stund. Að fara aftur í fyrsta málið okkar - þegar podcastið okkar byrjaði og segja söguna aftur, núna mörgum árum og þúsund þáttum síðar! Það er svolítið sérstök tilfinning 🖤En nú skulum við fara aftur til ársins 1912… í lítið hús í bænum Villisca í Iowa… þar sem ein nótt breytti öllu. 🪓🏠🕯️⬜️ ◻️◽️▫️•▫️◽️◻️ ⬜️⬜️ ◻️◽️▫️•▫️◽️◻️ ⬜️🆓 Ef þig langar að vera með okkur á milli þátta þá langar okkur að bjóða ykkur í samfélagið okkar á Patreon sem er FRÍTT! Þar deilum við hinu og þessu sem þið sjáið hvergi annars staðar 😉Endilega komið og verið með okkur við hlökkum til að sjá þig þar! Smelltu á linkinn og veldu JOIN FOR FREE: JOIN FOR FREE samfélagið okkar á Patreon! 👈🏻👆🏻👆🏻👆🏻👆🏻👆🏻👆🏻👆🏻👆🏻KOMDU Í DRAUGASÖGU FJÖLSKYLDUNA 🌙 Ef þú vilt bíó í eyrun 🎧 og tilheyra hópi sem deilir ástríðu fyrir draugasögum → þá er þetta rétti staðurinn fyrir þig!PRÓFAÐU FRÍTT Í VIKU SAMFÉLAGIÐ OKKAR Á PATREON Skráðu þig í áskrift á Spotify Frábæru samstarfsfélagar okkar eru:HELL ICE COFFEHUNDATENGSLLeanbody Draugasögur á Samfélagsmiðlum: Instagram Facebook Tiktok
adbl_web_anon_alc_button_suppression_t1
No reviews yet